Ný rafbók Hreint haf – Plast á norðurslóðum er komin út!

Hreint haf - Plast á norðurslóðum er námsefni, rafbók og verkefnavefur um hafið. landvernd.is
Hreint haf - Plast á norðurslóðum er komin út. Nemendur á yngsta- og miðstigi læra um áhrif hafsins á líf þeirra og hvaða áhrif þau hafa á hafið.

Hreint haf – Plast á norðurslóðum er komin út

Hvernig hefur hafið áhrif á líf okkar og hvernig höfum við áhrif á hafið?

Í bókinni Hreint haf – Plast á norðurslóðum er hafið skoðað á heildstæðan hátt. Efnið byggir á haflæsi (ocean literacy) og valdeflandi aðferðum menntunar til sjálfbærni (Education for sustainability).

Nemendur á yngsta- og miðstigi læra um áhrif hafsins á líf okkar og hvernig við höfum áhrif á hafið. Fjallað er um plast í hafi og sjónum beint að því hvernig hægt er að hjálpa hafinu. 

Í þessari bók er fjallað um mikilvægi hafsins fyrir allt líf á Jörðinni og hafið notað sem rauður þráður til að kenna um áhrif manna á náttúruna, mengun og getu til aðgerða.

Um útgáfuna

Hreint haf – Plast á norðurslóðum samanstendur af rafbók og verkefnasafni og kennsluleiðbeiningum. Bókin er unnin í samstarfi Landverndar, Menntamálastofnunar og Umhverfisstofnuna. Útgáfan var styrkt af NordMar Plastics, formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2019.

Höfundurinn
Höfundur námsefnisins er Margrét Hugadóttir sérfræðingur hjá Landvernd. Hún er náttúrufræðikennari með meistarapróf í fjölmenningarlegum kennsluháttum og hefur mikla reynslu af námsefnisgerð sem byggir á hugsmíðahyggju, menntun til sjálfbærni, leitarnámi og umbreytandi námi.

Áður gerði hún Hreint haf (2020), Vísindavöku (2017), Skapandi skóli, handbók um fjölbreytta kennsluhætti (2017), og Jörð í hættu!?(2016).

Hönnun og teikningar voru í höndum Aronar Freys Heimissonar grafisks hönnuðar.

Hreint haf á Norðurlöndum

Bókin hefur verið þýdd á nokkur norðurlandatungumál og er aðgengileg á vef Menntamálastofnunar og Norden i skolen.

Hreint haf - Plast á norðurslóðum er komin út á norðurlandatungumálujm. landvernd.is
Hreint haf - Plast á norðurslóðum er aðgengileg á Nordeniskolen.org

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd