Samgönguáætlun

Minni umferðarhraði dregur úr loftmengun í þéttbýli og bætir þannig lýðheilsu.
Landvernd telur að algjör viðsnúningur þurfi að verða á samgönguáætlun - þar sem hagsmunir umhverfis, lýðheilsu og framtíðarkynslóða verða í forgrunni.

Við  gerð nýrrar samgönguáætlunar virðist því miður ekki hafa verið gætt að því að hafa nýjustu gögn og rannsóknir til viðmiðunar: Minni losun gróðurhúsalofttegunda, sparnaður á fjármunum ríkisins og fjármunum einstaklinga, heilsufarskostnaður eða umhverfisáhrif hafa ekki verið höfð að leiðarljósi við samningu frumvarpsins, heldur er hugsunarháttur gamla tímans allsráðandi þar sem einkabíllinn og þungaflutningar eru í forgangi fram yfir almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi.

Því telur Landvernd að algjör viðsnúningur þurfi að verða á samgönguáætlun þar sem hagsmunir umhverfis, lýðheilsu og framtíðarkynslóða skuli vera í forgrunni.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd