Verkefnið byggir á valdeflingu nemenda og lýðræðislegu skólastarfi
Skólar sem hafa áhuga á að vera í verkefninu byrja á því að skrá sig hér að ofan.
Þegar skólinn hefur verið formlega skráður á græna grein fær hann senda handbók verkefnisins og staðfestingu á þátttöku í verkefninu.
Skólarnir stíga skrefin sjö til að koma á breytingum í skólanum á lýðræðislegan hátt með þátttöku nemenda. Unnið er að 1-2 þemum á hverju grænfánatímabili og er unnið að 5-6 markmiðum sem tengjast þemanu.
Skólar ráða hversu langan tíma þeir taka í þá vinnu en að jafnaði tekur það um tvö ár.
Þegar skóli telur sig hafa stigið skrefin til fulls sendir hann inn umsókn ásamt greinagerð til Landverndar. Starfsmaður Landverndar mætir svo í skólann til að taka út starfið.
Skólar á grænni grein geta sótt ráðgjöf til Landverndar um allt sem lýtur að þessu starfi. Skólar á grænni grein og grænfánaskólar mynda tengslanet, eiga samstarf og skiptast á upplýsingum.
Sérfræðingar skóla á grænni grein bjóða þátttökuskólum upp á kynningu á verkefninu og vinnustofur fyrir starfsfólk. Árlega er fulltrúum skóla boðið á grænfánaviðburð á vegum Landverndar, annað hvert ár á stóra ráðstefnu og hitt árið á landshlutafundi sem fara fram í öllum landshlutum.
Þátttökugjald á skóla er að lágmarki 25.000 kr. Ef skólar eru á fleiri en einni starfsstöð, eru greiddar 15.000 krónur fyrir hverja starfsstöð.
Landvernd sendir skólunum reikninga fyrir árgjaldi í okt. – nóv.