Stóriðjustefnan – nýju fötin keisarans

Stóriðja í Helguvík er tímaskekkja, Arion banki og Stakksberg eiga að falla frá hugmyndum um að endurræsa kísilverksmiðjuna, landvernd.is
Stóriðja í Helguvík er tímaskekkja, Arion banki og Stakksberg eiga að falla frá hugmyndum um að endurræsa kísilverksmiðjuna. Ljósmynd: Andstæðingar stóriðju í Helguvík
Stóriðjan á Íslandi tapaði í heild 40 milljörðum árið 2019, áður en Covid-kreppan skall á. Tapreksturinn ár eftir ár veldur því að stóriðjan greiðir ekki eðlileg gjöld í sameiginlega sjóði landsmanna. Tapreksturinn skýrist meðal annars af óhagstæðum lánum frá erlendu móðurfyrirtækjunum.

Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar skrifar

Öflugt starf í náttúruvernd eins og stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands er ein sjálfbærasta efnahagsaðgerð sem hægt er að grípa til. Hún þjónar öllum stoðum sjálfbærninnar: efnahagslegumfélagslegum og umhverfislegum. Til langs tíma er verndun náttúrunnar haldbesta lausnin á þeim efnahagsvanda sem við okkur Íslendingum blasir.

Taprekstur stóriðju ár eftir ár

Uppbygging orkufreks iðnaðar hefur hins vegar ekki reynst sá efnahagslegi bjargvættur sem margir halda fram. Þvert á móti reyndar. Stóriðjan á Íslandi tapaði í heild 40 milljörðum árið 2019, áður en Covid-kreppan skall á. Tapreksturinn ár eftir ár veldur því að stóriðjan greiðir ekki eðlileg gjöld í sameiginlega sjóði landsmanna. Tapreksturinn skýrist meðal annars af óhagstæðum lánum frá erlendu móðurfyrirtækjunum.

Ferðamennska rétti af efnahaginn eftir hrun

Það var ferðamennskan sem rétti af efnhaginn og krónuna eftir hrun. Hingað til lands hefur fólk komið til þess að skoða kynngimögnuð víðerni, einstakar jarðmyndanir, fagra fossa og kröftug jarðhitasvæði. Íslensk náttúra á engan sinn líka í heiminum hvað fjölbreytni varðar, enda segja 80 prósent þeirra ferðamanna sem hafa sótt Ísland heim að náttúran sé meginástæða heimsóknarinnar. Til að reisa við ferðaþjónustuna þurfum við að tefla fram okkar sterkustu leikmönnum: Íslenskum náttúruperlum. Þjóðgarður á hálendi Íslands vekti heimsathygli og myndi að auki stuðla að sjálfbærri og skipulagðri nýtingu hálendisins.

Stóriðjan meiri baggi en bjargvættur

Í nýjasta tölublaði Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins, er farið yfir tap íslenskra lífeyrissjóða og banka í tengslum við kísilverið á Bakka, – tap sem nú stendur í 11,6 milljörðum. Áður hafði íslenska ríkið lagt kísilverinu beint til 4,2 milljarða og fyrirtæki í ríkiseigu, Landsnet og Landsvirkjun hafa farið í miklar fjárfestingar vegna línulagna og byggingar orkuvers við Þeistareyki. Litlar tekjur hafa fengist á móti.Tap fyrirtækja, lífeyrissjóða og banka í eigu almennings vegna kísilversins á Bakka nálgast því annan tug milljarða.

Kísilver United Silicon á Reykjkanesi stendur svo óstarfhæft sem minnisvarði um mislukkaða stefnu sem hefur skilið eftir sig sviðna jörð og gríðarlegt fjárhagslegt tap. Íbúar í nágrenninu vilja alls ekki að það verði gangsett aftur.

Lærum af reynslunni

Sameiginlegir sjóðir landsmanna í víðum skilningi hafa verið nýttir til þess að greiða niður tap vegna stóriðjuhugmynda eftir hrun. Nýjustu stóriðjuframkvæmdirnar hafa því miklu fremur verið þurfalingar en efnahagslegir bjargvættir.

Þegar við reisum við efnahagslífið eftir heimsfaraldurinn sem nú geisar skulum við læra af árangri og mistökum fyrri ríkisstjórna í tilraunum þeirra til þess að glæða efnahaginn lífi. Þar er óspillt náttúra okkar besti bandamaður.

Við verðum að vernda íslenskrar náttúru til frambúðar. Hún er dýrmætasti og stöðugasti lífeyrissjóður okkar. Stöndum saman að vönduðum þjóðgarði á Hálendi Íslands.

Athugasemdir Landverndar við frumvarp umhverfisráðherra um Hálendisþjóðgarð má finna hér.

Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar.

Greinin birtist fyrst 9. febrúar 2021 á Vísi.is 

 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd