Við sendum inn umsögn vegna draga að frumvarpi um bann við leit, rannsókn og vinnslu kolvetnis (olíu) í efnahagslögsögunni, mál nr. 37/2022. Sjá má umsögnina í heild sinni með því að smella á hnappinn neðst í greininni.
Tímabært skref
Stjórn Landverndar hefur kynnt sér ofangreind frumvarpsdrög og ítrekar stuðning sinn við þau. Bann við vinnslu og leit að olíu er nauðsynlegt til þess að staðfesta yfirlýstan vilja Íslands í verki til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Engu er fórnað með því að banna olíuleit og -vinnslu þar sem ekki fer fram virk leit að olíu í lögsögu Íslands. Það er tímabært og mikilvægt að taka af skarið og innleiða bannið með lagasetningu strax.
Stjórn Landverndar telur að frumvarpsdrögin séu í samræmi við orkustefnu fyrir Ísland þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að Ísland verði jarðefnaeldsneytislaust árið 2050, við stjórnarsáttmálann þar sem Ísland skal verða jarðefnaeldsneytislaust fyrir 2040 og við Parísarsáttmálann sem Ísland hefur undirritað.
Sýnum vilja í verki
Landvernd vill nota tækifærið og hrósa ríkisstjórninni fyrir metnaðarfull markmið í loftslagsmálum. Í framhaldinu væri afbragðsskref fyrir íslenska ríkið að gerast aðili að bandalagi þjóða sem hafa skuldbundið sig til þess að leyfa ekki nýja olíu- og gasvinnslu (Beyond Oil and Gas Alliance) og skipa sér þar með í fremstu röð þjóða sem sýna í verki vilja til að hefta loftslagsvánna.