Umsóknir um bláfána fyrir árið 2007

Landvernd fór með umsjón Bláfánans á árunum 2002-2018, landvernd.is
Hafnir og baðstrandir sem sækjast eftir Bláfánanum á árinu 2007 þurfa að leggja fram umsókn eigi síðar en 20. febrúar n.k.

Skrifstofa Landverndar er þessa daga að senda bréf nokkura hafna á landinu til að vekja athygli á Bláfánanum.

Í bréfinu segir að hafnarstjórnir sem sækjast eftir Bláfánanum á árinu 2007 þurfa að leggja inn umsókn eigi síðar en 20. febrúar 2007.

Umsóknareyðublaðið fyrir smábátahafnir er að finna er að finna hér.

Umsóknareyðublaðið fyrir baðstrendur er að finna er að finna hér.

Einnig má hafa samband við skrifstofu Landverndar og fá umsóknareyðublað sent í pósti eða tölvupósti.

Umsóknargjaldið er 5.000 kr. (fyrir innsenda umsókn). Verði samþykkt að veita Bláfánann þá bætist við 25.000 kr. þátttökugjald.

Landvernd og stýrihópur Bláfánans munu eftir atvikum geta veitt aðstoð við gerð umsóknar.

Þess má geta að smábátahafnir sem ekki treysta sér til að uppfylla öll skilyrði á árinu 2006 en geta sýnt fram á að skilyrðin eru uppfyllt að verulegu leyti og lýsa því yfir að áformað sé að gera frekari úrbætur, fá s.k. Bláfánaskírteini til vitnis um ágæta stöðu og góðan ásetning. Líta má á Bláfánaskírteinið sem undanfara Bláfánans. Það getur því verið eftirsóknarvert að senda inn umsókn jafnvel þó eitthvað vanti upp á að hægt sé að uppfylla allar kröfur á yfirstandandi ári.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd