Kjalvegur

Uppbyggður Kjalvegur

Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga um heilsársveg um Kjöl. Samtök ferðaþjónustunnar hafa ályktað gegn uppbyggðum vegi yfir Kjöl þar sem slík framkvæmd myndi gjörbreyta upplifun ferðamanna. Í ályktuninni segir m.a.: „Vegur af þeirri gerð sem hér er rætt um sviptir hálendið sérkennum sínum og þeirri öræfastemningu sem ferðamenn sækjast eftir. Hálendi landsins hefur mikið gildi fyrir þjóðina og með því að leggja uppbyggða samgönguæð í gegnum eitt helsta hálendissvæðið er verið að spilla verulega þeirri upplifun sem menn sækjast eftir.“ Ferðaklúbburinn 4x4 er einnig andsnúinn hugmyndum um uppbyggingu Kjalvegar vegna sjón- og hávaðamengunar sem honum fylgja. Þá telur félagið að heilsársvegur myndi svipta hálendið sérkennum sínum.

Lögð var fram þingsályktunartillaga á Alþingi árið 2007 um heilsársveg um Kjöl. Samtök ferðaþjónustunnar ályktuðu gegn uppbyggðum vegi yfir Kjöl þar sem slík framkvæmd myndi gjörbreyta upplifun ferðamanna. Í ályktuninni segir m.a.: „Vegur af þeirri gerð sem hér er rætt um sviptir hálendið sérkennum sínum og þeirri öræfastemningu sem ferðamenn sækjast eftir. Hálendi landsins hefur mikið gildi fyrir þjóðina og með því að leggja uppbyggða samgönguæð í gegnum eitt helsta hálendissvæðið er verið að spilla verulega þeirri upplifun sem menn sækjast eftir.„ Ferðaklúbburinn 4×4 er einnig andsnúinn hugmyndum um uppbyggingu Kjalvegar vegna sjón- og hávaðamengunar sem honum fylgja. Þá telur félagið að heilsársvegur myndi svipta hálendið sérkennum sínum.

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.