Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Síðbúin Jónsmessuganga

27 júní @ 14:00 - 17:00

Síðbúin Jónsmessuganga að Inghól og norður eftir fjallinu, niður að Torfastöðum og til suðurs meðfram fjallshlíðinni að Alviðrubænum.

Ingólfsfjall er 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu, í vestur, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi og að Torfastöðu, sem er nokkuð brattari niðurleið. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt.

Ingólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur, að því  er segir í Landnámu, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum, og var færður til hinstu hvílu á fjallinu sem við hann er kennt.

Gengið verður frá bænum Alviðru eftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Frá Inghól verður gengið norður eftir Ingólfsfjalli og komið niður á móts við Torfastaði. Það er nokkuð brött leið og því gott að hafa göngustaf með til að styðjast við. Þegar niður er komið er gengið til suðurs meðfram fjallinu að Alviðrubænum. Ætla má að gangan taki 4 til 6 klukkustundir.

Munið göngustaf, haldgóða skó, hlífðarföt og nesti. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson sem oft hefur gengið á fjallið. Boðið verður upp á kakó og kleinur í gamla bænum að aflokinni göngu.

Þeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða, fallega, vel merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst.

Alviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar staðsett undir Ingólfsfjalli við vegamóta Biskipustungubrautar og Grafningsvegar, um 10 km norður af Selfossi, á móts við Þrastarlund.

Í sumar stendur Alviðra fyrir mörgum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins má sjá hér: Sumardagskrá AlviðruLandvernd

Nánar

  • Dagsetning: 27 júní
  • Tímasetning:
    14:00 - 17:00