Andrés Skúlason er verkefnastjóri Náttúrukortsins hjá Landvernd.
Andrés starfar sem verkefnastjóri Náttúrukortsins hjá Landvernd og sinnir einnig grænni pólitík.
Sú reynsla sem Andrés tekur með sér inn í starf Landverndar er margvísleg reynsla af félags- og stjórnunarstörfum sem spannar yfir breitt svið sem veitt hefur honum mikilvæga innsýn, ekki síst á opinbera stjórnsýslu, þar með talið margvíslega umhverfispólitík.
Andrés hefur tekið virkan þátt bæði á sveitarstjórnarsviðinu sem og í landsmálunum. Þá hefur Andrés víðtæka reynslu af bæði umhverfis- og skipulagsmálum af störfum sínum innan stjórnsýslunnar en hann sat nær samfellt sem oddviti í Djúpavogshreppi í 16 ár eða allt frá 2002 – 2018. Þar kom Andrés einnig að nokkrum friðlýsingarverkefnum bæði hvað varðar náttúru- og menningarminjar. Andrés hefur komið að margháttaðri vinnu við bæði skipulagsgerð á ólíkum stigum og eins unnið að skýrslum er varðar verndar- og stjórnunaráætlanir og viðamiklum minjaverndarverkefnum eins og aðstoð við skýrslugerð vegna verndarsvæðis í byggð. Andrés sat einnig jafnhliða öðrum störfum um árabil sem formaður Náttúruverndarsamtaka Austurlands en þau hafa látið mikið til sín taka á síðustu árum svo eftir hefur verið tekið.
Andrés hefur á liðnum árum átt sæti í fleiri stjórnum og ráðum innan stjórnsýslunnar en hér verður talið upp. En helstu baráttumálin sem hann brennur fyrir eru umhverfis- og náttúruvernd í sínum víðasta skilningi ásamt verndun menningarminja sem er annað helsta baráttumál hans, en Andrés situr einmitt í sæti form. Fornminjanefndar Minjastofnunnar. Þá á Andrés einnig sæti í dag í Minjaráði Austurlands sem og í stjórn Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) sem veitir haldgóða reynslu og þekkingu á orkumálum. Þá starfar hann einnig jöfnum höndum inn á pólitíska sviðinu þar sem hann á sæti í stjórn VG.
Önnur áhugamál en náttúru- og minjavernd þá hefur Andrés alltaf haft brennandi áhuga á ljósmyndun, myndvinnslu og videógerð, og er jafnan bæði með ljósmyndavél og dróna við hlið sér í ferðalögum. Andrés hefur einnig mikinn áhuga á íþróttum og útivist – en Andrés starfaði einnig um árabil sem formaður íþróttafélags og stundaði knattspynu af miklum móð á yngri árum, en hjólreiðar og gönguferðir eru helsta hreyfingin í dag.
Síminn hjá Andrési er 8995899.
andres (hjá) landvernd.is
Vindorka – árás á náttúru Íslands
Um stórar „smávirkjanir“. Ekki er allt sem sýnist
Mynd: Við upptök Geitdalsár í Leirudal. Ljósmynd: Andrés Skúlason