Tvær vindmyllur voru reistar við Búrfell árið 2013 í rannsóknarskyni. Svæðið er vinsælt meðal ferðafólks, þar liggja leiðir upp á Fjallabak og miðhálendi Íslands og má telja þar nokkrar helstu náttúrugersemar Íslands.
Rannsóknarsvæði fyrir vindmyllur er um 78 km2 og liggur nærri Valafelli og Áfangagili þar sem er fjallaskáli og vinsælt útivistarsvæði.
Heimild: Orkustofnun