Fjögur náttúruverndarsamtök ítreka stöðvunarkröfu vegna Hvalárvirkjunar

Á myndinni má sjá ármót Rjúkanda og Hvalár á Drangajökulsvíðernum. Þarna hyggst Vesturverk byggja vinnubúðir sínar, landvernd.is
Á myndinni má sjá ármót Rjúkanda og Hvalár á Drangajökulsvíðernum. Þarna hyggst Vesturverk byggja vinnubúðir sínar.
Fjögur náttúruverndarsamtök hafa sent inn stöðvunarkröfu vegna Hvalárvirkjunar til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Samtökin kærðu framkvæmdaleyfi fyrsta hluta Hvalárvirkjunar í fyrr og gerðu um leið kröfu um stöðvun framkvæmda. Úrskurðanefndin hefur enn ekki úrskurðað í málinu, framkvæmdir eru yfirvofandi og því senda samtökin aftur inn kröfu um stöðvun.

Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Ungir umhverfissinnar og Rjúkandi hafa ítrekað kröfu sína um stöðvun framkvæmda við Hvalárvirkjun. Stöðvunarkrafa var einnig gerð í júlí í fyrra samhliða kæru sömu samtaka vegna framkvæmdaleyfis sem Árneshreppur veitti Vesturverki vegna fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar.  Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði stöðvunarkröfu samtakana í fyrra með þeim rökum að nefndin gæti lokið málsmeðferð áður en framkvæmdir hæfust sumarið 2020. Nú hefur nefndin enn ekki úrskurðað og brátt geta framkvæmdir hafist í Árneshreppi. 

Samtökin telja því brýnt að úrskurðarnefndin stöðvi framkvæmdir þar til hún hefur komist að niðurstöðu.

Alþjóðlegu nátturúruverndarsamtökin hafa tekið undir með samtökunum fjórum sem standa að kærunni um að svæðið beri að vernda.  Nánari upplýsingar um svæðið og margvíslega tengla má finna á heimasíðu Landverndar og á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands sem hefur lagt til að svæðið verði friðlýst. 

Þá er vandséð hver þörfin er fyrir aukna raforkuframleiðslu þar sem ekki er raforkuskortur í landinu og 77% raforkunnar fer til stóriðju skv. orkutölum Orkustofnunnar 2018Hvalárvirkjun er ekki besta leiðin til þess að auka afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum og því er ekki um brýna almannahagsmuni að ræða við byggingu virkjunarinnar.  

Lesa stöðvunarkröfu samtakanna. 

 

Ef nánari upplýsinga er óskað, vinsamlegast hafið samband við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar í síma 8435370.

 

Á ljósmynd má sjá ármót Rjúkanda og Hvalár á Drangajökulsvíðernum þar sem Vesturverk hyggst reisa vinnubúðir. 

Tengt efni

No products were found matching your selection.

Taktu afstöðu með náttúrunni, gakktu í lið með Landvernd

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd