Skólar á grænni grein vinna eftir skrefunum sjö, sjötta skrefið er að upplýsa og fá aðra með. Mikilvægt er að auka tengsl skólans og nemenda við nærsamfélagið og segja frá því sem vel er gert.
Skólar á grænni grein vinna eftir skrefunum sjö, sjötta skrefið er að upplýsa og fá aðra með. Þetta skref felur í sér að vekja athygli á því sem vel er gert í sjálfbærni- og umhverfismál- um t.d. á heimasíðu skólans, í tölvupóstum til foreldra og fréttabréfum. Skólar eru einnig hvattir til að setja sig í samband við bæjarblöð eða aðra fjölmiðla þegar tilefni er til.
Allir upplýstir um grænfánavinnuna
Mikilvægur hluti af starfi skóla í verkefninu er að upplýsa allt skólasamfélagið um það sem fram fer í sjálfbærni- og umhverfismálum innan skólans. Með skólasamfélaginu er átt við alla nemendur, alla starfsmenn, foreldra, forráðamenn og aðra sem að skólastarfinu koma. Í þessu skrefi er einnig lögð áhersla á að skólar setji sig í samband við íbúa nærsamfélagins og stofnanir og fyrirtæki í nágrenni skólans.
Árlegur viðburður sem tengist grænfána / þema / menntun til sjálfbærni
Skólar skulu standa fyrir árlegum viðburðum sem tengjast sjálfbærni- og umhverfismálum þar sem fólk í nærsamfélaginu er boðið velkomið. Einnig geta skólar kynnt stefnu sína í þessum málum á opinberum stöðum, stofnunum eða fyrirtækjum í nágrenni skólans.
Sýnileiki út á við
Þetta skref felur í sér að vekja athygli á því sem vel er gert í sjálfbærni- og umhverfismál- um t.d. á heimasíðu skólans, í tölvupóstum til foreldra og fréttabréfum. Skólar eru einnig hvattir til að setja sig í samband við bæjarblöð eða aðra fjölmiðla þegar tilefni er til.
Gott að hafa í huga:
- Voru allir í skólasamfélaginu (starfsmenn + nemendur) upplýstir þátttakendur í verkefninu?
- Voru foreldrar fræddir um verkefnið- þemu og markmið- og hvattir til þátttöku?
- Var nærsamfélag frætt um þátttöku í verkefninu, þemu og markmið, og hvatt til þátttöku?
- Hvernig getum við aukið meðvitund í nærsamfélaginu um það góða starf sem fram fer í skólanum?
- Hvernig getum við hvatt fólk í nærsamfélaginu til góðra verka?