Jónsmessuganga um hlíðar Ingólfsfjall

Jónsmessuganga í hlíðum Ingólfsfjalls við Alviðru, landvernd.is
24. júní kl. 19:30. Öll velkomin í Jónsmessugöngu um hlíðar Ingólfsfjalls, með útsýni yfir Sogið og Grímsnesið. Bjarni Harðarson veitir leiðsögn.

Velkomin í Jónsmessugöngu um hlíðar Ingólfsfjalls, með útsýni yfir Sogið og Grímsnesið.

Miðvikudaginn 24. júní 2020 kl. 19:30 verður boðið upp á Jónsmessugöngu um hlíðar Ingólfsfjalls undir leiðsögn Bjarna Harðarsonar bóksali á Selfossi og Sigurður Sigursveinssonar, sem er stjórnmaður í Kötlu UNESCO jarðvangi (Katla Global Geopark). Þetta er létt ganga þar sem fjallað verður um jarðfræði svæðisins og Ingólfsfjall í vitund þjóðar og Árnesinga.

Eftir göngurnar bíður Landvernd upp á kakó og kleinur í Alviðru.

Allir eru hjartanlega velkomnir, en gott væri að fá vísbendingu um fjölda gesta svo við biðjum um að staðfesta komu hér. 

Alviðra og Öndvernðarnes II eru friðað land í sameign Árnesinga og Landverndar. Í Alviðru er starfrækt fræðslusetur Landverndar fyrir almenning og skóla. Frekari upplýsingar um Alviðru er að finna hér.

Göngukort, kort yfir gönguleiðir í Alviðru, landvernd.is

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd