Lífið á hálendinu

Hvernig ætli það sé að vera planta á hálendi Íslands? Þær þurfa að vera við öllum veðrum og vindum búnar og af því að snjóa leysir þar seint er sumarið ansi stutt á hálendinu.
Hálendisplöntur verða svo gamlar að þær þurfa ekki aðeins að þola þær breytingar sem munu eiga sér stað á æviskeiði okkar heldur líka á æviskeiðum barna okkar, barnabarna og margra ættliða framtíðarinnar.

Hálendið ber með sér að vera ævafornt. Eins og höfuðskepna sem vofir yfir okkur á láglendinu. Hálendi Íslands er það svæði sem verður harðast fyrir barðinu á náttúruöflunum. Hvort sem á dynja frosthörkur, stormar, eldgos eða öskufall þurfa lífverurnar á hálendinu að láta það sem á dynur yfir sig ganga. Aðstæður eru svo kvikar að maður trúir því vart að nokkur lífvera geti lifað af á hálendinu til lengri tíma.

En þarna tórir lífið ekki aðeins heldur dafnar, svo vel reyndar að fjöldi lífvera lifir aðeins á hálendinu en getur ekki lifað af á láglendi. Þessar tegundir, eins og jöklasóley sem blómstrar sínum bleiku blómum og gullbrá, ein af einkennistegundum íslenska hálendisins, eiga það sameiginlegt að finnast helst á mjög köldum svæðum eins og á Svalbarða, Síberíu, Alaska eða í hlíðum Alpafjallanna, þeim svæðum sem eiga undir högg að sækja vegna loftslagsbreytinga og annarra áhrifa mannsins. Hálendið er þeirra griðastaður.

En hvernig ætli það sé að vera planta á hálendi Íslands? Til að byrja með þurfa plönturnar að vera við öllum veðrum og vindum búnar. Sumarið er stutt á hálendinu þar sem snjóa leysir mun seinna en á láglendi, oft í slíkum vatnsflaumi að gróður getur jafnvel átt á hættu að drukkna. Kuldinn og ófyrirsjáanleg veður gera plöntum erfitt að framleiða stór laufblöð sem gætu nýtt sólina vel. Því hafa flestar plöntur lítil blöð sem liggja nálægt jörðinni, þar sem er skjólgott að vera og minni hætta á að blöðin rifni í vindi. Litla orku er að fá þegar sumarið er stutt og áður en langt um líður þurfa plönturnar að blómstra og dreifa fræjum sínum. Þetta þarf að gerast áður en haustið skellur á og klæðir landslagið í sitt hvíta teppi.

Langlífi og nægjusemi einkenna plöntur hálendisins

Hálendisplöntur þurfa að nýta orkuforða sinn skynsamlega því forðanæringin sem þær ná að safna í ræturnar má ekki klárast við blómgun heldur þarf hún að endast allan veturinn. Þess vegna blómstra hálendisplöntur oft ekki nema á nokkurra ára fresti. Það kemur ekki að sök því margar þeirra lifa mjög lengi, að minnsta kosti í einhverjar aldir, jafnvel árþúsund, ef þær fá að vera óáreittar.

Ég fyllist sjálfur lotningu þegar ég hugsa til þess hversu lífseigar lífverur hálendisins eru og hvaða breytingar þær munu þurfa að standa af sér. Hálendisplöntur verða svo gamlar að þær munu ekki aðeins þurfa að þola þær breytingar sem munu eiga sér stað á æviskeiði okkar heldur líka á æviskeiðum barna okkar, barnabarna og margra ættliða framtíðarinnar. Það er furðuleg tilhugsun að hugsa til þess að ísinn í Vatnajökli sé gerður úr snjó frá tíma sagnaritaranna, að Eggert Ólafsson hafi kannski stigið á sömu lambagrasþúfu og ég á ferðum sínum.

Hver sem okkar verk verða á hálendinu þá munu þau varðveitast þar um langa tíð. Förum vel með hálendið okkar, þessa merkilegu sameign þjóðarinnar.

Greinin var skrifuð í tilefni af Hálendishátíð sem haldin var í Iðnó 11. október. 

Greinin birtist fyrst á visir.is 10. október 2022. 

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd