Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir sérfræðingur hjá Landvernd skrifar
Ég tel mér trú um að ég sé ekki sú eina sem á eftir að redda jólagjöfunum. Síðustu ár hefur mér tekist að einfalda og minnka gjafa innkaupin og um leið fjölga samverustundum. Svo skemmtilega vill til að samverustundir eru jólagjöf ársins, samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar. Það er sannarlega þróun í rétta átt, því ef við lítum til baka; eru það ekki akkúrat samverustundirnar sem skapa þessar ljúfu æskuminningar um jólin?
Það er þó eitthvað nostalgískt og notalegt við vel skreytta jólapakka sem bíða eftir manni undir trénu. Ég gæti ekki hugsað mér að sleppa alveg takinu af þeim og hugsa að fleiri séu á sama stað.
Mig langar því að deila með ykkur 50 hugmyndum að loftslagsvænum jólagjöfum sem koma beint frá sjálfboðaliðum Landverndar. Flestar gjafahugmyndirnar bíta ekki í veskið og krefjast þess ekki endilega að leitað sé langt út fyrir heimilið.
50 hugmyndir að loftslagsvænum jólagjöfum
Þú getur gefið:
Mat
uppskrift og allt sem þarf í hana
heimagert konfekt
heimagerðar smákökur eða múslí
krydd, kaffi eða sérbúna matarkörfu
gjafakort í Nándina matarbúð
Samveru
óvissuferð
matarboð
göngutúr saman með nesti
gjafakort út að borða saman
dekurferð í náttúruna, með teppi og kakó
hugleiðslustund með þér í Lótushúsinu
Til mannúðarmála eða umhverfismála
Handverk og listir
eitthvað prjónað
ljóð eða lag
teikningu eða málverk
skúlptúr
leikþátt eða uppistand
rafrænt námskeið
fallegt kort með hlýjum orðum til viðkomandi
Upplifun
leikhús
bíó
tónleika
gjafakort Ferðafélags Íslands
Skref í átt að sjálfbærni
góðar bækur
afleggjara af blómi sem þú átt
súrdeigsmóður
gjafakort í verslanir sem huga að umhverfismálum
Áskrift
í Munasafnið (Reykjavík tool library)
blaðaáskrift
bókasafnskort
Þjónustu
barnapössun
nudd
fjallaleiðsögn
skutl
aðstoð á heimilinu (t.d. við þrif eða flutninga)
Heimagerða snyrtivöru eða uppskrift að:
Greinin birtist fyrst á heimildin.is 11. desember 2023