Skilaboð til náttúruunnenda Íslands

Líffræðilegur fjölbreytileiki er flóknara viðfangsefni en loftslagsváin, sem nóg er flókin samt.
Neysla okkar og lifnaðarhættir eru komin langt yfir mörk jarðar á mörgum sviðum.

Náttúruvernd á undir högg að sækja um heim allan.

Í kjölfar þess að loftslagsvandinn verður óðum viðurkenndari í öllum sínum alvarleika hefur hafist leit að lausnum. Leitað er að lausnum þar sem allir vinna. Neysla okkar og lifnaðarhættir eru komin langt yfir mörk jarðar á mörgum sviðum. Lausnirnar sem upp koma eru að mörgu leiti staðgenglar yfirdrifinnar neyslu þar sem bruni jarðefnaeldsneytis víkur fyrir öðrum gerðum ágangs á vistkerfi og náttúru. Það er ekki heillavænlegt.

Líffræðilegur fjölbreytileiki er flóknara viðfangsefni en loftslagsváin, sem nóg er flókin samt. Hvað þá samspil þeirra beggja og mengunar sem einnig ógnar heilsu fólks. Það er í eðli okkar að leita sökudólga til þess að geta útilokað þá og haldið áfram lífi okkar óbreyttu. Það er okkur fjarri lagi að líta í eigin barm, taka ábyrgð sem samfélag í heild og viðurkenna að lifnaðarhættir okkar eru ekki sjálfbærir og ógna framtíð komandi kynslóða.

Samstaðan og eljan

Sem lítil smáþjóð í Norður Atlantshafi upplifum við okkur máttlaus gagnvart ástandinu. Hvað þá sem einstaklingar. Þá eru það samskipti okkar við aðra sem skipta öllu máli. Við eigum að hefja hvort annað upp og veita innblástur og samstöðu. Viðfangsefnið er ærið og margslungið en með samstöðu, bæði innanlands og utan geta ótrúlegustu hlutir gerst. Sjáið bara hvað ein ung stúlka frá Svíþjóð gat hrifið með sér marga og hvernig sú samstaða olli miklum framförum í málaflokknum.

Eftir að ég hóf störf í náttúruverndinni hef ég kynnst svo mörgu fólki sem á það allt sameiginlegt að brenna fyrir málstaðnum en einnig upplifa sig mörg ein og einangruð í baráttunni. Eftir því sem verkefnin verða fleiri þá dreifumst við oft meira og upplifum okkur enn þá einangraðri. Þá er mikilvægt að minna sig á samhengi hlutanna og allt hitt fólkið sem maður á að. Samstaða og sameiginleg framtíðarsýn er meðalið að tala saman og deila áhyggjum, lausnum og jafnvel grínast aðeins, hefur margföldunaráhrif á okkar árangur.

Hlustum á hvort annað og vinnum þetta saman sem samfélag.

Greinin birtist fyrst á visir.is 12. febrúar 2024. 

Goðafoss í Skjálfandafljóti.

Orkuskiptahermir

Skoðaðu orkuskiptahermi Landverndar. Orkuskiptin geta farið fram án þess að eyðileggja einstaka íslenska náttúru.
Opna...

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd