Alviðra fræðslusetur Landverndar stendur í sumar fyrir metnaðarfullri og áhugaverðri sumardagskrá fyrir gesti og gangandi. Alviðra á í góðu samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands um dagskránna, en þessar stofnanir leggja sumardagskrá Alviðru til sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum.
Dagskráin felur í sér stutt fræðsluerindi og hóflega göngu á vettvang.
Dagskráin stendur frá kl.14 til kl.16 nokkra laugardaga í júní og ágúst.
Sumardagskrá í Alviðru
19. júní – Lífríkið í fersku vatni – Ragnhildur Guðmundsdóttir líffræðingur
26. júní – Jurtaríkið – Rannveig Thoroddsen plöntuvistfræðingur
14. ágúst Jarðfræðin í nágrenni Alviðru – Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur
21. ágúst – Ætihvönn til matar, litunar og heilsubótar – Eva Þorvaldsdóttir líffræðingur.
Alviðra er í Ölfusi, stendur undir Ingólfsfjalli, gegnt Þrastalundi.
Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin. Sjá á korti
Verið velkomin.