Við öll, náttúran og loftslagið

Landsvirkjun hefur ekki tekist að sýna fram á að Hvammsvirkjun í Þjórsá skaði ekki lífríki árinnar.
Síðustu ár hefur einstaklega vel tekist til með að rugla almenning í ríminu með illskiljanlegum loftslagsmarkmiðum og kröfum um breytta hegðun. Því miður ná þær kröfur bara til almennra borgara en hvorki til fyrirtækja né forystufólks.

Náttúran hefur líklega aldrei átt minni og veikari stuðning en nú á tímum hamfarahlýnunar og loftslagsvár. Að fórna náttúrunni fyrir loftslagið virðist vera stefna stjórnvalda, sem of margt fólk trúir á. Það hentar í augnablikinu fyrir orkugeirann,  hrattvaxandi fyrirtæki og hagvöxt til skamms tíma, en er gjöreyðandi fyrir loftslag og umhverfi til framtíðar. Loftslagsmál eru óreiðukennt umræðuefni og hagsmunaaðilar hafa ranglega stillt náttúruverndinni upp sem andstæðingi loftslagsins. Þótt niðurbrot náttúrunnar sé hin raunverulega ógn.

Kröfur á almenning en ekki atvinnulíf

Síðustu ár hefur einstaklega vel tekist til með að rugla almenning í ríminu með illskiljanlegum loftslagsmarkmiðum og kröfum um breytta hegðun. Því miður ná þær kröfur bara til almennra borgara en hvorki til fyrirtækja né forystufólks. Við óbreyttu eigum að hjóla, flokka, endurnýta, planta trjám, minnka neyslu, hætta að keyra, fljúga og skjóta flugeldum og skammast okkar fyrir plastið, kjötið og prumpandi kýr í haga. 

Meðan þessu fer fram gortar atvinnulífið sig af milljarðauppbyggingu í nýjum mengandi atvinnugreinum, útflutningi á fjöllum, vatni og eldisfiskum og innflutningi á ríkum túristum á einkaþotum og skemmtiferðaskipum. Sama atvinnulíf boðar stóraukinn hagvöxt byggðan á innfluttu vinnuafli, sem býr í iðnaðarhúsnæði í úthverfum, ekur á díseldruslum í þrælavinnuna og þvælist landa á milli fyrir skattalegt hagræði fyrirtækja. Krafan um að atvinnulífið taki sig á er lágstemmd ef nokkur.

Orkuskortur og orkuþensla

Leiðtogarnir stofna sjóði af almannafé til að styrkja mengandi stórfyrirtæki í að menga aðeins minna, veita hvaða mannafls- og orkufrekum framkvæmdum sem er fullan stuðning, ýta undir  endalausa þenslu og innflutning á vinnuafli, kenna flóttamönnum um álag á innviðina og boða fjölda virkjana til að mæta orkuskortinum sem þeir búa til sjálfir.

Ógnirnar eru ræddar með áhyggjusvip á ráðstefnum út um allan heim, þar sem sammælst er fjarlæg óskýr markmið, sem er frestað við og við. Samfélagsábyrgð, sjálfbærni, losun, binding og loftslagsmarkmið, gegna mikilvægu hlutverki sem skrautyrði í markaðssetningu stórfyrirtækja. Blandað saman við heimsendaspár. Ekki þarf að undrast að loftslagskvíði sé orðinn að heimsfaraldri hjá ungu fólki við þessar aðstæður. Og sá kvíði er líka markaðssettur. 

Við virkjum okkur ekki frá loftslagsvánni

Náttúruvernd og verndun loftslags eru ekki andstæður. Það vitum við sem betur fer mörg. Loftslagið er hluti af náttúrunni og við virkjum okkur ekki frá loftslagsvánni. Ekki frekar en við flokkum okkur frá ofneyslunni. Við sem styðjum náttúruvernd og almannarétt erum miklu fleiri en þeir sem meta allt út frá skjótfengnum milljörðum og hagvexti. Tökum höndum saman og látum ekki rugla í okkur lengur. Við öll náttúruverndar-, útivistar-, launþega-, heilsuverndar-, almannaheilla- og neytendasamtök erum sterkari saman í baráttunni fyrir náttúruna, loftslagið og heilbrigt samfélag. Gerum kröfur á atvinnulífið og ráðamenn og látum ekki tvístra samstöðunni með fráleitum kenningum um að fórna náttúru fyrir loftslag. Stórfyrirtæki og stjórnvöld þurfa að axla sinn hluta af ábyrgðinni. Og hann er stór.

Greinin birtist fyrst á visir.is 24. október 2023.  

Goðafoss í Skjálfandafljóti.

Orkuskiptahermir

Skoðaðu orkuskiptahermi Landverndar. Orkuskiptin geta farið fram án þess að eyðileggja einstaka íslenska náttúru.
Opna...

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd