Opinn fundur – Afbygging stóriðju í Helguvík

Listasafn Reykjanesbæjar Duusgata 2, 230 Reykjanesbær, Ísland

Afbygging stóriðju í Helguvík - Opinn borgarafundur verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl kl. 17:30 - 19:30 í Listasafni Reykjanesbæjar. Fundurinn mun fjalla um stöðu kísilverksmiðjunnar í Helguvík og svæðisins, í […]

Náttúruvernd og skipulagsmál – Hvernig höfum við áhrif?

Við bjóðum öllu náttúruverndarfólki á rafrænt örnámskeið þann 4. apríl. Námskeiðinu er ætlað að gera skipulagsmálin aðgengilegri og kenna hvernig allir geta haft áhrif. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur og stjórnarkona […]

Félagar undirbúa aðalfund

Við í Landvernd höldum almennan félagsfund á zoom til að fara yfir og undirbúa gögn sem liggja fyrir aðalfundi.

Aðalfundur Landverndar 2024 – Auðlindir í almannaþágu

Gufunesbær - Hlaðan

Boðað er til aðalfundar Landverndar fimmtudaginn 23. maí. Húsið opnar 16:30 og hefst fundurinn á slaginu 17:00. Sjá allar upplýsingar um fundinn hér.   Skráning á aðalfund Fundargestir eru beðnir […]

Fuglar og flóra við Sogið – sumardagskrá Alviðru

Laugardaginn 8. júní kl. 14:00 -16:00 munu náttúrufræðingarnir  Rannveig Thoroddsen og Einar Þorleifsson  leiða létta og skemmtilega fræðslugöngu um Þrastarskóg. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu.

Smádýralíf við Sogið – Sumardagskrá Alviðru

Laugardaginn 15. júní kl. 14:00 mun Gísli Már Gíslason skordýrafræðingur, fræða okkur um heim skordýranna.
Skordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum.

Veiðidagur í Soginu

Alviðra

Veiðidagur í Soginu í samstarfi við Starir ehf.

Hefur þig dreymt um að kasta fyrir lax í einstakri náttúrufegurð?
Sunnudag 18. ágúst bjóða Alviðra og veiðifélagið Starir ehf gestum að kynna sér lax- og silungsveiði í Soginu og prófa hvernig það er að standa á árbakkanum og kast agni fyrir fisk.