Hvað er Landvernd?

Landvernd stendur vörð um íslenska náttúru

Landvernd er stærstu náttúruverndarsamtök landsins. Samtökin eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. 

Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi.

Landvernd vinnur að náttúruvernd, loftslagsmálum og fræðslu um sjálfbært samfélag, landvernd.is

Stefna Landverndar 2019-2021

Stefna Landverndar árin 2019-2021 er að auka áhersla á fræðslu, loftslagsmál, náttúruvernd og sjálfbært samfélag.
Lögum um náttúruvernd skal fylgja, Landvernd krefst þess að náttúran fái að njóta vafans og sinna lögvörðu réttinda, landvernd.is

Lög Landverndar

Lög samtakanna Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands.
Eyrarrós er eitt af einkennisblómum hálendis Íslands, ljósmyndari Hafþór Óðinsson, landvernd.is

Markmið Landverndar

Markmið Landverndar eru að vernda náttúru og umhverfi Íslands, endurreisa spillta náttúru, auka sjálfbæra umgengni og virkja Íslendinga í alþjóðasamstarfi um umhverfismál.


Við þurfum langtíma plan

Samtökin líta svo á að náttúru- og umhverfisvernd, sem og endurreisn spilltra náttúrugæða, séu forsenda efnahagslegrar og samfélagslegrar velferðar til lengri tíma litið. Þau hvetja til sjálfbærrar umgengni þjóðarinnar við náttúruna heima við og á hnattræna vísu, sem byggir á öflugri umhverfisvitund, þekkingu og verndarvilja.

Félögum fjölgar

Innan Landverndar eru 40 aðildarfélög um allt land en auk þess eru um 6000 félagar í Landvernd. 

Landvernd hefur umsjón með Grænfánanum sem er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni. Grænfáninn er stærsta innleiðingartæki menntunar til sjálfbærni í heiminum í dag. Um 200 skólar á Íslandi taka þátt í verkefninu en á heimsvísu má finna verkefnið í 67 löndum víðsvegar um heim. Verkefnið menntar nemendur í sjálfbærni og umhverfisvernd og byggir það á lýðræðismenntun og getu til aðgerða. 

Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök voru stofnuð árið 1969. Í hálfa öld hafa samtökin staðið vörð um íslenska náttúru, verið virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfið.

Félagar Landverndar berjast fyrir náttúru Íslands, landvernd.is

Félagar í Landvernd

Félagar í Landvernd berjast fyrir náttúru Íslands og leyfa náttúrunni að njóta vafans. Með því að vera félagi í Landvernd styður þú við baráttu Landverndar ...

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

AF STJÓRNARSTARFI OG AÐALFUNDUM

Aðalfundur Landverndar 23. maí – skráning og allar helstu upplýsingar

Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna kl. 16:00 föstudaginn 23. maí í Tjarnabíó, við Tjarnargötu í Reykjavík. Á aðalfundi er mörkuð stefna samtakanna. Fundargestir eru beðnir ...

Frestur til framboðs rennur út á miðnætti 9. maí

Stjórn Landverndar óskar eftir framboðum til stjórnar. Ár hvert er kosið í fimm embætti til tveggja ára. Í ár er kosið í fjögur stjórnarsæti auk ...

Orkumál – ályktun aðalfundar 2024

Í breyttri heimsmynd ber okkur skylda til að endurskoða alla raforkuframleiðslu, sölu og notkun nú og til framtíðar. Stjórnmálamenn þurfa að sýna hugrekki og ábyrgð ...

Verndun hafsins- ályktun aðalfundar 2024

Ísland ráðist í viðamiklar rannsóknir á vistkerfum hafsbotnsins og ákvarði út frá þeim hvaða 30% hafsvæða að lágmarki verðiskuli vernduð á grundvelli mikilvægra vistkerfa. Þá ...

Tjáningarfrelsi og náttúruvernd – ályktun aðalfundar 2024

Landvernd skorar á stjórnvöld og fjölmiðla að styðja við náttúruvernd og þátttöku almennings í henni. Landvernd minnir á Árósasamninginn og hlutverk frjálsra félagasamtaka. Þau eiga ...

Stofnum Reykjanesþjóðgarð – ályktun aðalfundar 2024

Staða náttúruverndar á Reykjanesskaga er óviðunandi og umsjón með Reykjanesfólkvangi lítil og minnkandi. Landvernd telur kominn tíma til að undirbúa stofnun þjóðgarðs á Reykjanesskaga, við ...