reykjanesid, landvernd.is

Alvarlegt brot á Árósasamningnum ef af verður – umsögn

Ef frumvarpið yrði samþykkt væri með því kippt úr sambandi lögbundnu ferli um mat á umhverfisáhrifum. Varðandi málið sjálft efnislega er Alþingi að gagna gegn áliti Skipulagsstofnunar um að leggja beri línuna í jörð og vinna gegn skipulagsábyrgð sveitafélagsins Voga sem telur heillavænst að leggja línuna í jörð.

Við skiluðum inn umsögn um frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2, 11. mál.

Hvetjum til þess að frumvarpið sé dregið til baka

Stjórn Landverndar telur frumvarpið stórhættulegt fordæmi fyrir faglega ákvarðanatöku í málefnum sem varða umhverfið, fyrir sjálfstæði sveitarfélaga og fyrir lýðræðislegan rétt almennings til þess að koma að ákvörðunum sem varða hann sjálfan og umhverfið.

Stjórnin telur jafnframt að frumvarpið sé mjög alvarlegt brot á EES reglum um mat á umhverfisáhrifum og Árósasamningnum. Má í því sambandi minna á ákvörðun í október 2018 þegar Alþingi samþykkti einróma lög sem brutu gegn þessum reglum og ESA hefur úrskurðað um að brjóti gegn EES-reglum. Stjórn Landverndar hvetur því til að frumvarpið verði dregið til baka af flutningmönnum þess.

Skýrt brot á EES samningnum

Ef frumvarpið yrði samþykkt væri með því kippt úr sambandi lögbundnu ferli um mat á umhverfisáhrifum sem sett hafa verið skv. innleiðingu á EES reglum. Um skýrt brot á EES samningnum væri því að ræða. Auk þess væri tekið fyrir möguleika almennings á að leita til úrskurðanefndar umhverfis og auðlindamála vegna brota á lögum sem varða umhverfi þeirra. Með samþykkt frumvarpsins yrði faglegu ákvarðanatökuferli kippt algjörlega úr sambandi. Ferlið eins og það er í dag hefur ekki alltaf verið náttúruverndarsjónarmiðum hliðhollt, en það er þó að einhverju leyti til mótvægis við sterk hagsmunaöfl sem oft á tíðum taka ekki tillit til áhrifa framkvæmda á umhverfi og náttúru.

Nýlegur úrskurður staðfestir fyrri brot stjórnvalda

Umhverfis- og samgöngunefnd er vinsamlegast bent á nýlegan úrskurð ESA um brot íslenska ríkisins á EES reglum um mat á umhverfisáhrifum sem m.a. byggja á Árósasáttmálanum. Úrskurðurinn varðar lagabreytingar sem íslensk stjórnvöld gerðu á lögum um fiskeldi og hollustuhætti og mengunarvarnir í október 2018 og stríddu gegn EES reglum.

Í úrskurði ESA kemur alveg skýrt fram að það er brot á EES reglum að veita leyfi til framkvæmda eða starfsemi sem heyrir undir MÁU lögin fram hjá ferlinu. 

Gengið gegn áliti Skipulagsstofnunar

Með því að grípa inn í með þessum hætti er Alþingi að gagna gegn áliti Skipulagsstofnunar um að leggja beri línuna í jörð og vinna gegn skipulagsábyrgð sveitafélagsins Voga sem telur heillavænst að leggja línuna í jörð.

Það er skýr niðurstaða Skipulagsstofnunar að leggja beri Suðurnesjalínu 2 sem jarðstreng í vegöxl Reykjanesbrautar, þvert á það sem flutningsmenn frumvarpsins vilja. Málið snýst ekki um það hvort Suðurnesjalína 2 verði lögð heldur hvernig. Landsnet þráskallast við að leggja línuna sem loftlínu þrátt fyrir alvarleg sjónræn áhrif hennar og neitar að leggja hana í jörð í vegöxl Reykjanesbrautar en þannig er hægt að takmarka jarðrask verulega.

3. áfangi rammaáætlunar

Rammaáætlun fjallar um orkunýtingu og verndun landsvæða. Hún skal byggja á vísindalegri þekkingu um hvert svæði og taka tillit til vistkerfa, lífríkis, landslagsheilda, jarðfræði, umhverfisáhrifa ...
Lesa meira

Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur

Landvernd styður hverja þá breytingu sem setur sjókvíaeldi stífari ramma og skorður sem minnka hættu á stórslysum fyrir íslenska náttúru og vistkerfi. Landvernd sendi Matvælaráðuneytinu ...
Lesa meira
Stakihnjúkur og Tungnaá sem rennur frá vesturhluta Vatnajökuls, Hálendi Íslands - Þjóðgarður landvernd.is

Óbyggðanefnd – breytingar á lögum

Mikilvægt er að traust ríki um leyfisveitingar og aðrar stjórnsýslulegar ákvarðanir á þjóðlendum. Almenningur verður að geta treyst því að þeir sem fara með slíkar ...
Lesa meira

3. áfangi rammaáætlunar

Rammaáætlun fjallar um orkunýtingu og verndun landsvæða. Hún skal byggja á vísindalegri þekkingu um hvert svæði og taka tillit til vistkerfa, lífríkis, landslagsheilda, jarðfræði, umhverfisáhrifa ...
Lesa meira

Reglugerð um fiskeldi – í ljósi reynslunnar þarf að stórherða kröfur

Landvernd styður hverja þá breytingu sem setur sjókvíaeldi stífari ramma og skorður sem minnka hættu á stórslysum fyrir íslenska náttúru og vistkerfi. Landvernd sendi Matvælaráðuneytinu ...
Lesa meira
Stakihnjúkur og Tungnaá sem rennur frá vesturhluta Vatnajökuls, Hálendi Íslands - Þjóðgarður landvernd.is

Óbyggðanefnd – breytingar á lögum

Mikilvægt er að traust ríki um leyfisveitingar og aðrar stjórnsýslulegar ákvarðanir á þjóðlendum. Almenningur verður að geta treyst því að þeir sem fara með slíkar ...
Lesa meira

Stuðningur við friðlýst svæði í Vatnsfirði

Mikill skaði myndi hljótast af virkjun á friðlýstu svæði í Vatnsfirði. Gott væri ef Orkubú Vestfjarða sem er að fullu í eigu ríkisins léti af ...
Lesa meira

Svona hefur Landvernd áhrif

Landvernd hefur áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku í umhverfismálum með því að skrifa umsagnir, álykta um málefni tengd umhverfisvernd og náttúruvernd. Landvernd krefst þess að farið sé að lögum og hefur látið reyna á nokkur mál fyrir dómi.

Náttúruvernd er loftslagsvernd

Félagar í Landvernd láta sig náttúruna varða. Vertu með í Landvernd og hafðu áhrif.