Margmiðlunarsýningin „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ er samsýning Landverndar og Ólafs Sveinssonar. Sýningin var upphaflega sett upp í samstarfi við Norræna húsið og Framtíðarlandið í tilefni af 50 ára afmæli Landverndar. Sýningin stendur nú yfir í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og lýkur þar 12. september 2020. Hún verður sett upp á Egilsstöðum 3. október.
Á þessari einstöku margmiðlunarsýningu með ljósmyndum, stuttmyndum og gagnvirkum upplýsingaskjám er fjallað um þær náttúruperlur sem hafa glatast og gætu glatast ef haldið verður áfram á sömu braut.
Ísland er einstakt með sinni stórbrotnu og lítt snortnu náttúru með samspili jarðhita og jökla, gljúfra og gilja, stórra fjalla og fjölmargra vatnsfalla, víðáttumikilla auðna og viðkvæms gróðurs í óbyggðum víðernum sem eiga engan sinn líka. Það eru verðmæti sem ekki verða mæld í krónum og aurum, en verða þó sífellt meiri eftir því sem þau eru látin ósnortin lengur. Átökin um þessi verðmæti hafa staðið í áratugi og mikið hefur glatast vegna stórra framkvæmda eins og orkuvinnslu.
Hið dýrmæta en viðkvæma dýraríki landsins í samspili við fyrrnefndar náttúruperlur er einnig í kastljósi sýningarinnar en óvenju lifandi og skemmtilegar myndir um villt dýr á Íslandi eru hluti hennar.