Hvað er Landvernd?
Landvernd stendur vörð um íslenska náttúru
Landvernd er stærstu náttúruverndarsamtök landsins. Samtökin eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu.
Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi.
Stefna Landverndar 2019-2021
Lög Landverndar
Markmið Landverndar
Við þurfum langtíma plan
Samtökin líta svo á að náttúru- og umhverfisvernd, sem og endurreisn spilltra náttúrugæða, séu forsenda efnahagslegrar og samfélagslegrar velferðar til lengri tíma litið. Þau hvetja til sjálfbærrar umgengni þjóðarinnar við náttúruna heima við og á hnattræna vísu, sem byggir á öflugri umhverfisvitund, þekkingu og verndarvilja.
Félögum fjölgar
Innan Landverndar eru 40 aðildarfélög um allt land en auk þess eru um 6000 félagar í Landvernd.
Landvernd hefur umsjón með Grænfánanum sem er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni. Grænfáninn er stærsta innleiðingartæki menntunar til sjálfbærni í heiminum í dag. Um 200 skólar á Íslandi taka þátt í verkefninu en á heimsvísu má finna verkefnið í 67 löndum víðsvegar um heim. Verkefnið menntar nemendur í sjálfbærni og umhverfisvernd og byggir það á lýðræðismenntun og getu til aðgerða.
Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök voru stofnuð árið 1969. Í hálfa öld hafa samtökin staðið vörð um íslenska náttúru, verið virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfið.
Helstu viðfangsefni Landverndar
Félagar í Landvernd
200 skólar á grænni grein
Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.