Hverjir menga mest?

Stóriðja, sér í lagi framleiðsla málma er stærsti valdur mengunar á Íslandi á eftir flugsamgöngum, á myndinni má sjá Elkem á Grundartanga, landvernd.is
Framleiðsla málma og flugsamgöngur eru þær iðngreinar sem menga langsamlega mest á Íslandi.

Á meðan losun koltvíoxíðs á hvern íbúa í ESB ríkjunum hefur farið lækkandi hefur losun Íslendinga hækkað nokkuð hratt undanfarin ár. Ísland trónir nú á toppnum yfir losun koltvíoxíðs innan ESB.

Flug og framleiðsla málma veldur mestri losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, landvernd.is
Flug og framleiðsla málma mengar mest. Hagstofan 2019
Íslendingar losa mest af koltvíoxíði í ESB ríkjunum.
Íslendingar losa mest í ESB. Hagstofan 2019

En þó að Íslendingar mengi mikið miðað við höfðatölu þá útskýrir losun heimila aðeins um 10 % losunar Íslands. Framleiðsla málma og flugsamgöngur eru þær iðngreinar sem menga langsamlega mest á Íslandi.

Fyrirtæki sem menga mest á Íslandi, Stundin 3. júní, 2019
Fyrirtæki sem menga mest á Íslandi. Stundin 2019.

Þó að notast sé við íslenskt „grænt“ rafmagn í stóriðjunni hér á landi þá þarf að flytja inn öll ógrinnin af trékurli, kolum og hráefni til að framleiða málma.

Mengun er það þegar ákveðin efni flæða út í umhverfið í því magni að þau valdi skaða.

Mengun er það þegar ákveðin efni flæða út í umhverfið í því magni að þau valdi skaða. Efnin sem slík eru ekki öll mengandi þegar þau eru í litlu magni, en þegar styrkur þeirra í umhverfinu er of mikill geta efnin valdið tjóni á heilsu fólks, dýrum, plöntum og óhreinkað vatnið, landið og loftið á jörðinni.

Efni sem menga geta verið margskonar. Sum eru sýnileg eins og plast og olía en erfitt er að sjá efni í lofti eða örplast með berum augum.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd