Jökulfall í Árnessýslu rennur úr Hofsjökli, meðfram Kerlingarfjöllum og saman við Hvítá við norðanvert Bláfell. Svæðið er ósnortið gagnvart orkuvinnslu og mikil víðerni einkenna svæðið. Fyrirhuguð virkjun yrði um 22 MW með stíflu norðan Ásgarðsfjalls og um 14 km2 miðlunarlóni í Blánípuveri sem er stærsta samfellda votlendissvæðið á sunnanverðum Kili. Gýgjarfoss í Jökulfalli myndi hverfa að mestu og stór gróðursvæði eyðast ásamt stórfelldu raski á víðáttumiklu hálendisvíðerni.
Hvíta og Jökulsá í Árnessýslu
Fjöldi náttúruminja er á vatnasviði Hvítár, meðal annars Hvítárvatn og Hvítárnes, Hvítárgljúfur, Pollengi, Tunguey og Höfðaflatir. Friðlýstar minjar eru Þórarinsstaðir, Laugahvammur, Búðarárbakki og Tjarnarrústin.
Í náttúruverndaráætlun 2004-2008 lagði Umhverfisstofnun fram tillögur að friðlýsingu Hvítárvatns, Hvítárness og Karlsdráttar og Brúarár, Skálholtstungu og Höfðaflata. Skálholtstunga og Höfðaflatir eru lítt röskuð votlendi við Hvítá. Pollengi og Tunguey eru votlendi og eru þau afar mikilvæg fyrir fugla og gróðurfar, en flest votlendissvæði Suðurlands eru mikið röskuð eða alveg framræst.
Nauðsynlegt er talið að halda einnig vatnasviði Hvítár neðan Gullfoss óvirkjuðu (Haukholt, Vörðufell, Hestvatn og Selfoss), meðal annars vegna margra mikilvægra fuglasvæða sem tengjast Hvítá, til dæmis ósasvæði Ölfusár. Að auki er áin notuð til flúðasiglinga. Einnig gæti virkjun við Selfoss haft áhrif á fiskgengd í Hvítá og gríðarstórt vatnasvið hennar.
Umhverfi Jökulfalls
Gýgjarfoss er í Jökulkvísl (Jökulfalli), í nágrenni Kerlingarfjalla. Kerlingarfjöll eru á náttúruminjaskrá og ber því að vernda Kerlingarfjallasvæðið í heild sinni og halda óröskuðu.
Virkjunarhugmyndir
Í Hvítá og Jökulkvísl (Jökulfall) í Árnessýslu eru uppi hugmyndir um sex virkjanir. Þar af falla Búðartunguvirkjun, Haukholtsvirkjun, Vörðufellsvirkjun og Hestvatnsvirkjun í biðflokk og Gýgjarfossvirkjun og Bláfellsvirkjun í verndarflokk. Tveir síðastnefndu kostirnir eru hvað umdeildastir þar sem þeir yrðu myndaðir ofan við Gullfoss og gætu haft mikil áhrif á rennsli hans.
Jökulkvísl (Jökulfall) yrði stífluð við Ásgarðsfjall norðan Kerlingarfjalla og þar með um 14 km² miðlunarlón. Afl Gýgjarfossvirkjunar yrði 21 MW. Vatni yrði veitt um 7 km göng niður fyrir Gýgjarfoss þar sem aflvélum yrði komið fyrir. Stærð virkjunarinnar miðast við að Bláfellsvirkjun yrði byggð samtímis.
Ef af virkjun yrði myndi rask á vistkerfum, jarðvegi, landslagsheildum og náttúruupplifun á svæðinu verða umtalsvert og óafturkræft.