Ungt umhverfisfréttafólk á Íslandi

Ljósmyndari að störfum fyrir verkefnið Ungt umhverfisfréttafólk landvernd.is
Ungt umhverfisfréttafólk að störfum!
Á tímum loftlagskvíða og falsfrétta valdeflum við ungt fólk og færum þeim tækifæri til að hafa áhrif. Er skólinn þinn skráður í verkefnið?

Verkefnið Ungt umhverfisfréttafólk skapar nemendum vettvang til þess að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt. Auk þess hafa nemendur tækifæri til að taka þátt í árlegri samkeppni um bestu umhverfisfréttirnar. 

Verkefninu er ætlað að gefa ungu fólki tækifæri og tól til þess að hafa jákvæð áhrif á umhverfismál.

Finna má Ungt umhverfisfréttafólk í 45 löndum, víðsvegar um heiminn. Landvernd hefur umsjón með verkefninu á Íslandi og vinnur að því í nánu samstarfi við skóla á landinu.

Verkefnið er ætlað nemendum í framhaldsskóla og á unglingastigi grunnskóla. og hægt er að aðlaga verkefnið mjög vel að ólíkum kennslugreinum t.d. tungumálakennslu, umhverfis- og náttúrufræði, fjölmiðlafræði, samfélagsfræði, stjórnmálafræði, kvikmyndagerð, ljósmyndun og öðrum listgreinum. Verkefnið verður einnig í boði fyrir háskólanema þegar fram líða stundir.

Nemendur fara í hlutverk fréttamanna, afla sér upplýsinga um tiltekið umhverfismál og koma því á framfæri.

Það er auðvelt að taka þátt!

Fjögur skref þátttöku:

  1. Skólar panta kynningu á verkefninu fyrir áhugasama kennara og stjórnendur.
  2. Ákveðið er hvar verkefnið passar best inn í kennsluna. Það getur t.d. verið eitt verkefni nemenda í áfanga að búa til afurð (ljósmynd, grein, myndband, hlaðvarp eða annað).
  3. Nemendur vinna verkefnin undir handleiðslu kennara. Nemendur og kennarar geta leitað til sérfræðinga í umhverfismálum í gegnum verkefnastjóra Ungs umhverfisfréttafólks. 
  4. Verkefnum er skilað í keppnina. Nemendur velja sjálfir hvort þeir vilja skila sínu verkefni í keppnina. Verkefnum er skilað rafrænt.

Sendu póst á umhverfisfrettafolk@landvernd.is ef þú hefur einhverjar spurningar um verkefnið!

Smelltu á hnappin hér fyrir neðan til þess að fá kynningu á verkefninu og hugsanlegri útfærslu í þínum skóla. Þátttaka í verkefninu er gjaldfrjáls fyrir þá skóla sem eru í Skólum á grænni grein (Grænfánaverkefninu).

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd