Björg Eva Erlendsdóttir er framkvæmdastjóri Landverndar
Björg Eva er með próf í fréttamennsku úr Blaðamannaháskólanum NJH í Ósló, próf í íslensku, norsku úr HÍ og lærði síðar norðurlandafræði við sama skóla. Hún á langan feril í fréttamennsku og ritstjórn á Íslandi og í Noregi. Síðast starfaði Björg Eva sem framkvæmdastjóri Vinstri grænna, og þar áður framkvæmdastjóri í samstarfi Vinstri grænna flokka á Norðurlöndum.
Björg Eva hefur verið virk í félagsstörfum tengdum umhverfismálum, skógrækt og fjallgöngum. Hún er stofnfélagi í Sól á Suðurlandi og hefur verið virk í fleiri náttúruverndarsamtökum. Hún sat í stjórn RÚV, bæði sem formaður og stjórnarmaður, í stjórn Ferðafélags Íslands og eitt tímabil í verkefnisstjórn rammaáætlunar.