Land í hættu – Djúpá

Gengið verður um fossasinfóníu Djúpárdals en þó að vatnasvið Djúpár sé í verndarflokki er þrátt fyrir það fyrihugað að virkja á þessu svæði, landvernd.is
6.-8. ágúst 2020. Ferð í samstarfi við Landvernd, Eldvötn, samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi og Ferðafélag Íslands.

Þriggja daga gönguferð 6. – 8. ágúst 2020 um land í hættu.

Eitt af best geymdu leyndarmálum í náttúru Íslands er hin stórkostlega fossasinfónía í botni Djúpárdals í Fljótshverfi. Þar steypist hið vatnsmikla jökulfljót Djúpá fram í mikilfenglegum fossum og fellur saman við blátærar og syngjandi bergvatnsár sem flæða upp úr úfnu hrauninu. 

Á þessu svæði eru uppi áform um að reisa virkjun en vatnasvið Djúpár er í verndarflokki í rammaáætlun. 

Þátttakendur koma sér sjálfir að Núpum í upphafi ferðar. Gist er í tjöldum í tvær nætur og farangur trússaður á milli næturstaða. Þessi fræðslu- og gönguferð er farin í samstarfi við Landvernd og Eldvötn, samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi. 

Brottför/Mæting

Kl. 13 frá Núpum í Fljótshverfi

Fararstjórn

Páll Ásgeir Ásgeirsson, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Tryggvi Felixson. 

Innifalið

Trúss og fararstjórn

Skráning fer fram á vef Ferðafélags Íslands.

Tengt efni

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd