Vilt þú taka virkan þátt og grípa til aðgerða í loftslagsmálum?
Loftslagshópurinn er grasrótarhópur á vegum Landverndar. Þar koma saman einstaklingar sem vilja hafa áhrif og grípa til aðgerða í loftslagsmálum. Eitt helsta markmið hópsins er að vekja athygli á loftslagshamförum.
Hópurinn skipuleggur ýmsa viðburði og gjörninga í þágu umhverfisins, skrifar greinar og umsagnir og leitast eftir því að hafa áhrif á loftslagsumræðuna í samfélaginu.
Fundir loftslagshópsins eru annan hvern þriðjudag frá kl. 20:00 – 22:00. Allt félagsfólk í Landvernd og nýir meðlimir velkomnir!
Hvað er gert á fundum ?
Með starfi loftslagshópsins skapast öðruvísi umræða og nýjar aðferðir við það að vekja athygli á loftslagsvandanum. Almenningur fræðir almenning og almenningur hvetur almenning. Grasrótarhópurinn er vettvangur fyrir fólk á öllum aldri sem vill fræðast um loftslagsvandann, grípa til aðgerða og hvetja almenning og stjórnvöld áfram.
Á fundum hópsins eru næstu aðgerðir skipulagðar, nýjustu fréttir í loftslagsmálum ræddar og skapast oft heitar umræður um lausnir á loftslagsvánni. Hópurinn hefur fengið til sín fyrirlesara á fundi sem hafa gefið vinnu sína en einn markmið hópsins er einmitt að auka þekkingu þátttakenda á hinum ýmsu hliðum loftslagsmála. Engin krafa er gerð um sérþekkingu meðlima á loftslagsmálum. Hópurinn samanstendur af aðilum með fjölbreyttan bakgrunn.
Dæmi um örfræðslur sem hópurinn hefur fengið:
- Umhverfisbankinn, Áskell Þórisson.
- Matarsóun og Vakandi, Rakel Garðarsdóttir
- Mikilvægi votlendis, Eyþór Eðvarðsson, stjórnarformaður Votlendissjóðsins
- Matarspor, Sigurður Loftur, Ungur umhverfissinni og starfsmaður Eflu
- Tækifæri í sjálfbærri matvælaframleiðslu á Íslandi, Sigurður Markússon
- Áhrif nýju stjórnarskráarinnar á umhverfismál, Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélagsins
- Áhrif beitar á kolefnisbúskap Íslands, Ólafur Arnaldsson
- Carbfix, dr. Sandra Snæbjörnsdóttir
- Bjargráð við loftslagskvíða – Vigdís Fríða, verkefnastjóri Ungs umhverfisfréttafólks