15 skemmtileg útivistarsvæði og gönguleiðir í Garðabæ

Gálgahraun og Urriðavatn eru meðal einstakra náttúruperla í Garðabæ, landvernd.is
Njóttu útivistar og náttúru innan höfuðborgarsvæðisins. Skoðaðu skemmtileg útivistarsvæði og gönguleiðir í Garðabæ. Erla Bil tók saman listann.

Urriðavatn og Gálgahraun eru meðal einstakra svæða í Garðabæ. Erla Bil Bjarnardóttir stjórnarkona Landverndar tók saman lista yfir 15. skemmtileg útivistarsvæði og gönguleiðir í Garðabæ. 

1. Vífilsstaðavatn

Malarstígur liggur umhverfis vatnið um 2,6 km. Aðkomur eru þrjár á mistórum bílaplönum (sjá kort). Vatnið og umhverfi þess var friðlýst 2007. Skrautfjöður friðlandsins er flórgoðinn, gerð var tilraun að setja út hreiðurstæði fyrir goðana á vorin. Flórgóðum hefur fjölgað á vatninu með hverju ári. Hundar eru bannaðir í friðlandinu um varptímann. Veiðileyfi í vatnið er tímabilið 1. apríl til 15. september. Gönguleið er úr friðlandinu á slóða upp á Grunnuvötn um Grunnavatnsskarð. 

Sorry, we couldn't find any posts. Please try a different search.

Gönguleiðir og útivistarsvæði í Garðabæ, landvernd.is

2. Vífilsstaðahlíð í Heiðmörk

Malarstígur liggur um skógi vaxið svæði inn með hlíðinni, frá bílaplani við Maríuvelli við Elliðavatnsveg. Fleiri bílaplön og útskot eru meðfram Heiðmerkurvegi. Um miðja hlíðina á móts við háspennumastrið er möguleiki að sveigja af leið yfir í Urriðakotshraunið.

3. Urriðakotshraun

Malarstígur liggur eftir hrauntröð sem er áframhald Selgjár. Áhugaverð útivistarleið um hraunið (hringur: Maríuvellir, Vífilsstaðahlíð, Urriðakotshraun, Maríuhellar). Maríuhellar voru friðlýstir árið 2014, fyrrum fjárhellar frá Vífilsstöðum og Urriðakoti. Þar er fræðsluskilti um hellanna. Gangan hefst frá bílaplani við Maríuvelli við Elliðavatnsveg við enda Vífilsstaðahlíðar.

4. Urriðavatn

Malbikaður stígur, rúmir 3 km að göngubrúnni yfir Oddsmýrarlæk og til baka. Stikuð leið er sunnan vatnsins. Fuglalíf er fjölskrúðugt og umhverfið friðsælt þó byggðin á Urriðaholti sé nærri. Gangan hefst frá bílastæðum Kauptúni.

5. Urriðavatn

Malarstígur liggur norðan vatnsins yfir Hrauntangann í Setbergsland. Stígurinn er hluti hringleiðar um Urriðavatn. Gangan hefst frá bílastæðum Kauptúni.

6. Svínahraun/Vífilsstaðahraun

Hér liggur gamall slóði frá Vífilsstöðum yfir steinbrú á Vatnsmýri, nefndur Berklastígur eða Jónshellnastígur. Við enda slóðans, innan við hraunjaðarinn eru hellar sem áður voru nýttir sem skjól fyrir sauðfé. Gönguleið á malarstíg fylgir læknum milli undirganga Reykjanesbrautar og Elliðavatnsvegar en hún teppist oft að vetrinum.

7. Búrfellsgjá að Búrfelli

Malarstígur liggur eftir endilangri Búrfellsgjá, þar endar gangan á Búrfell það er á gígbarmi eldstöðvarinnar sem skóp gjárnar og Búrfellshraun. Gönguleiðin hefst á góðu bílaplani innst við Heiðmerkurveg. Fræðsluskilti er staðsett við tröppur niður Hjallamisgengið. Gjáarétt og gerði er nyrst í gjánni ásamt Vatnsgjá gömlu vatnsbóli.

8. Selgjá

Slóðar liggja um gjána milli minja um seljabúskap fyrri tíðar. Gjárbotninn er vel gróinn og þýfður. Aðkoma er á bílaplani innst við Heiðmerkurveg, þar er fræðslu/söguskilti.

9. Smalaholt

Fjölmargir malarstígar liggja inn í skóginn. Hægt er að leggja bíl á tveimur bílastæðum, þar sem sveigt er af Elliðavatnsvegi norðan Vífilsstaðavatns. Fjöldi bekkja og áningarstaða er í skóginum. Kort af svæðinu er við bílastæði og grænt aðkomuskilti skóga.

10. Sandahlíð ofan Kjóavalla

Malarstígur liggur eftir skógi vaxinni hlið. Gott bílaplan með aðkomu frá Elliðavatnsvegi, áningarstaður með leiktækum. Kort við aðkomu.

11. Garðahraun efra

Malbikuð skemmtileg hringleið um Garðahraun var friðlýst 2014, aðkoma frá Hagaflöt eða norðan Kauptúnsbrúar. 

12. Garðahverfi og Skógtjörn

Hér er gaman að fylgjast með fuglalífinu og ganga um fjöru. Vor og haust kemur margæsin við sem fargestur.

13. Strandstígur Álftanes

Malarstígur (3 km) liggur meðfram ströndinni. Hann er jafnframt reiðstígur innan við sjóvarnargarða sem teygja sig meðfram ströndinni. Hægt er að komast niður í fjöru við Sandvík og Seylu. Fjölbreytt fuglalíf allt árið. Bílaplan er við Kasthúsatjörn, þar er fuglaskilti og einnig er hægt að leggja bílum við Seylu.

14. Seylan og Skansinn

Hér er gengið út að hinum sögufræga Skansi;  hvort sem ferðin hefst við Bessastaði eða Seyluna þá er gengið með fram Bessastaðatjörn. Gengið er eftir flóðvarnargarði sem stíflaði Bessastaðatjörnina, áður heit svæðið Dugguós. Fræðsluskilti er við Skansinn um sögu staðarins.  

15. Gálgahraun

Hinir fornu slóðar Fógetastígur og stikuð leið sem liggur nær ströndinni. Gálgahraun var friðlýst árið 2009. Áhugavert er að ganga þar um og hugsa til ferða fólks á kúskinsskóm um hraunið fyrr á tíð og setjast niður norðan við Gálgakletta og horfa til Bessastaða og hugleiða söguna. Fallega vogskorin ströndin þar sem sjórinn gengur inn í víkur á flóði. Aðkoma er við hringtorg á Hraunsholtsbraut að norðan, en Garðastekk að sunnan. Þar eru fræðsluskilti um söguna og fornar leiðir.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd