Hér finnur þú hjálpargögn sem styðja við grænfánastarfið í skólanum þínum. Leiðbeiningar, gátlistar, markmiðssetningablöð, umsóknir, úttektatímabil o.fl.
Landvernd og Skólar á grænni grein koma að útgáfu fjölbreytts námsefnis sem snýr að menntun til sjálfbærni. Námsefnið er öllum opið að kostnaðarlausu.
HANDBÆKUR
Vistheimt á gróðursnauðu landi – Handbók
Handbók Skóla á grænni grein
Verkefnakista Landverndar inniheldur fjölmörg verkefni sem byggð eru á menntun til sjálfbærni og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Verkefnin koma frá þátttökuskólum og námsefnishöfundum Landverndar.
Hvaða áhrif hefur hafið á líf okkar? Hvaða áhrif höfum við á hafið? Sex til tíu ára nemendur læra um hafið, plast og hvernig við getum haft áhrif. Námsefnið samanstendur af rafbók, verkefnum og kennaraleiðbeiningum.
Menntun til sjálfbærni eykur færni og hæfni nemenda til að greina stöðu mála í umhverfi sínu hafa áhrif.
Nemendur velta fyrir sér áskorunum sem blasa við mannkyninu og taka til aðgerða.
Markmiðið er að skapa réttlátan heim og framtíð þar sem þar sem fólk hefur jöfn réttindi og tækifæri. Skapa framtíð þar sem ekki er gengið svo á auðlindir jarðar að þær þverri og nái ekki að endurnýja sig.