
UM SKÓLA Á GRÆNNI GREIN
Skólar á öllum skólastigum taka þátt í grænfánaverkefninu. Skólar á grænni grein vinna að menntun til sjálfbærni og hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið, landvernd.is
Á Íslandi eru um 200 skólar á öllum skólastigum í grænfánaverkefninu.
Skólar á grænni grein (Eco-schools) er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi. Grænfáninn hefur verið á Íslandi frá árinu 2001. Verkefnið er stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education.
Skólar á grænni grein styðja við umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og almennt umhverfisstarf í skólum á öllum skólastigum.
Markmið verkefnisins eru að;
- bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
- efla samfélagskennd innan skólans.
- auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
- styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
- veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.
Grænfáninn sjálfur er viðurkenning eða verðlaun til skóla sem vinna að sjálfbærnimenntun á einhvern hátt. Hver skóli vinnur eftir skrefunum sjö, setur sér markmið og virkir nemendur.
Uppruni verkefnisins
Samtökin stofnuðu verkefnið árið 1992 til að svara ákalli og ályktun um þörf á slíku verkefni sem samþykkt var á heimsfundinum í Ríó árið 1992. Eitt af markmiðum Landverndar er að auka umhverfismennt í landinu og urðu samtökin aðilar að samtökunum Foundation for Environmental Education árið 2000 og hleyptu verkefninu Skólar á grænni grein af stokkunum ári síðar. Fyrstu skólarnir skráðu sig í verkefnið árið 2001 og eru nú um 200 skólar á öllum skólastigum víðsvegar um landið virkir þátttakendur í verkefninu. Grænfánaskóla má finna í 70 löndum víðsvegar um heiminn.
ÞÁTTTÖKUSKÓLAR
Fyrstu Grænfánaskólarnir á Íslandi
Fyrstu skólarnir á Íslandi voru grunnskólarnir Andakílsskóli á Hvanneyri, Fossvogsskóli og Selaásskóli. Stuttu síðar hófu leikskólar þátttöku og tók leikskólinn Norðurberg í Hafnarfirði af skarið. Í dag eru skólar af öllum skólastigum þátttakendur í verkefninu.
Hvað gera Skólar á grænni grein?
Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um heim sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.
STARFSFÓLK
Sigurlaug Arnardóttir
Sigurlaug Arnardóttir er sérfræðingur hjá Landvernd og Skólum á grænni grein.
Guðrún Schmidt
Guðrún Schmidt er sérfræðingur Skóla á grænni grein. Hún hefur aðsetur á Egilsstöðum.
Rannveig Magnúsdóttir
Rannveig er sérfræðingur hjá Landvernd og Skólum á grænni grein. Hennar sérsvið er málefni sem tengjast vistheimt, lífbreytileika, matarsóun, plasti og loftslagsmálum Rannveig er líffræðingur að …
STÝRIHÓPUR
Stýrihópur grænfánans
Stýrihópur Skóla á grænni grein fundar alla jafna einu sinni á ári og hefur áhrif á stefnu og starf Skóla á grænni grein.
Önnur menntaverkefni Landverndar
Umhverfisfréttafólk
Hafðu áhrif! Ungt umhverfisfréttafólk skapar ungmennum vettvang til þess að kynna sér umhverfismál og koma upplýsingum á framfæri á skapandi hátt. Kynntu þér málið og …
Vistheimt með skólum
Vistheimt með skólum Verkefnið beinir sjónum nemenda að endurheimt náttúrulegra gæða og mikilvægi hennar fyrir gróður og jarðveg, líffræðilega fjölbreytni og baráttuna við loftslagshamfarir. Landvernd …